Prótein kökumix (Protein Bake Mix)
Veittu uppáhalds uppskriftunum þínum próteinaukningu með Protein Bake Mix.
Protein Bake Mix er sérhönnuð vara til að tryggja jafnvægi í næringu, svo baksturinn þinn sé bæði bragðgóður og hollur. Varan er unnin úr hágæða mysupróteini, inniheldur nauðsynleg steinefni og veitir trefjar.
Vegna milds bragðs blandast Protein Bake Mix auðveldlega í hvaða uppskrift sem er og gerir hefðbundinn bakstur að próteinríkari valkosti hvort sem þú bakar smákökur, muffins, pönnukökur eða vöfflur.
Protein Bake Mix sameinar ánægju bakstursins með ávinningi próteins og hjálpar þér að ná daglegum markmiðum í hverjum bita.
Protein Bake Mix:
- Próteinríkt
- Uppspretta trefja
- Samsett úr blöndu lykil steinefna
- Fjölhæft í notkun vegna milds bragðs
- Inniheldur engan viðbættan sykur, sætuefni eða litar- og bragðefni
- Inniheldur 20 skammta
Útbúðu hollustu-pönnukökur!
Hitaðu non-stick pönnu á lágum hita. Blandaðu 24 g (3 msk) af Protein Bake Mix við 30 ml (2 msk) af léttmjólk (1,5 % fita) eða 30 ml (2 msk) af vatni. Þegar deigið er vel blandað, helltu því í miðjuna á pönnunni og sléttaðu út í þykktina sem hentar þér.
Steiktu á lágum hita í 2–3 mínútur þar til botninn er fallega gylltur. Snúðu pönnukökunni og steiktu hina hliðina á sama hátt.
Geymdu í lokuðu íláti á köldum og þurrum stað.


